149. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2019.

fiskeldi.

647. mál
[19:33]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg):

Forseti. Ég játa á mig þá handvömm að ég hélt að ég kæmist hér aftur í umræðu þegar við færum í seinna skjalið en þá er fínt að tala bara um allar þær tillögur sem hér koma á eftir. Ég vildi segja frá því að eins og kom fram varðandi tillögur minni hlutans hafa tillögur verið dregnar til baka þaðan. Það hefur einnig verið gert af hálfu meiri hlutans með einstakar breytingartillögur og hugsunin er að nefndin vinni saman að því að sameina þær tillögur á milli 2. og 3. umr. og að þær verði lagðar fram breyttar eftir þá vinnu hér við 3. umr.