149. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2019.

fiskeldi.

647. mál
[19:35]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf):

Herra forseti. Við greiðum hér atkvæði um breytingartillögu meiri hluta varðandi svokallaða samráðsnefnd um fiskeldi sem er að mörgu leyti frábær hugmynd, að til staðar sé nefnd sem sé ráðherra til skrafs og ráðagerða. Nei, það er eitthvað aðeins alvarlegra en það, en alla vega til umræðu um stöðu fiskeldis í landinu sem er mjög gott og mikilvægt mál. Hins vegar teljum við í minni hlutanum mikilvægt að þessi nefnd fjalli ekki um hið svokallaða áhættumat erfðablöndunar, enda eru þar inni hagsmunaaðilar en ekki sérfróðir aðilar hvað varðar erfðablöndun laxfiska.

Þar af leiðandi getum við ekki stutt þessa tillögu.