149. löggjafarþing — 124. fundur,  18. júní 2019.

fiskeldi.

647. mál
[19:39]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf):

Herra forseti. Mig langaði bara að koma hingað upp til að taka undir með hv. framsögumanni málsins, Kolbeini Óttarssyni Proppé, sem sagði áðan að samtalið og samvinnan í nefndinni hefði verið mjög góð eins og fram hefur komið áður. Við teljum þessar breytingartillögur, aðrar en þær sem hefur verið fjallað um sérstaklega hér á undan, málinu til bóta og styðjum þær þess vegna.