taka gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóður.
Herra forseti. Við í minni hluta atvinnuveganefndar teljum eðlilegt að hluti af innheimtum gjöldum renni til sveitarfélaganna enda verða sveitarfélögin fyrir umtalsverðum kostnaði, beinum og óbeinum, vegna uppbyggingar atvinnugreinarinnar. Við leggjum því til að það verði sérstök deild innan Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem úthluti þeim fjármunum og að fjármunirnir renni beint til sveitarfélaganna í stað þess að fara í gegnum einhvers konar sjóð þar sem sveitarfélögin a.m.k. upplifa það þannig að þau þurfi að fara bónleið til ríkis.
Ég hvet því þingheim til að samþykkja þessa breytingartillögu.