149. löggjafarþing — 124. fundur, 18. júní 2019.
dýrasjúkdómar o.fl.
766. mál
Herra forseti. Mitt erindi hingað upp er að kalla til baka 6. tölulið breytingartillögu meiri hluta atvinnuveganefndar. Sú breytingartillaga varðar gildistöku frumvarpsins og hér með boða ég breytingartillögu eftir að málið verður tekið út milli 2. og 3. umr. um annan gildistökutíma málsins.