149. löggjafarþing — 126. fundur,  19. júní 2019.

sameining Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins.

765. mál
[18:53]
Horfa

Frsm. minni hluta efh.- og viðskn. (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Nú líður mér eins og ég sé í munnlegu prófi. Í stað þess að fara út í útskýringar og skilgreiningar á hugtökum sem notaðar eru m.a. í greinargerð með þessu frumvarpi vil ég bjóða hv. þingmanni upp á kaffi í mötuneytinu og við leggjumst yfir málið.