sameining Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins.
Herra forseti. Við ræðum hér við 3. umr. frumvarp til laga um Seðlabanka Íslands og einnig frumvarp til laga um svokallaðan bandorm um sama mál. Eins og aðrir ræðumenn hafa komið inn á hefur hv. efnahags- og viðskiptanefnd fjallað töluvert um málið og átt um það marga fundi. Ég tel að náðst hafi ágætislending í málinu, m.a. fyrir tilstilli minni hlutans í nefndinni með ágætum breytingartillögum sem koma fram á þskj. 1885 og hv. þm. Óli Björn Kárason fjallaði um ítarlega áðan og einnig hv. þm. Oddný G. Harðardóttir.
Ég vil meina að það sé að mörgu leyti til fyrirmyndar að þrátt fyrir ágreining geti menn sameinast um að bæta mál með þessum hætti og að þrátt fyrir ágreining geti menn komist yfir ákveðinn þröskuld og sýnt pólitískan styrk í því að hjálpa þeim sem eru þeim ekki sammála við að bæta þau mál sem þeir eru að flytja og væntanlega þá öfugt. Þetta er að vissu leyti mikið fagnaðarefni.
Ég tel að úr verði stór og öflug stofnun. Hún mun hafa býsna góða yfirsýn yfir fjármálamarkaðinn og það er vel. Menn hafa svolítið velt því upp að þessi stofnun muni ekki fá neitt ytra aðhald. Nokkrir þingmenn hafa komið inn á það. Ég held þó að sá umbúnaður sem er til að mynda um nefndirnar þrjár, peningastefnunefndina, fjármálaeftirlitsnefndina og fjármálastöðugleikanefndina, að þær þurfi að gefa þinginu skýrslu eða koma fyrir þingnefndir, ein þeirra tvisvar á ári og hinar einu sinni, sé afar gagnlegur og verði í raun ákveðið eftirlit með nefndunum. Ég held að sú fræðsluskylda sem er lögð á Seðlabankann í frumvarpinu muni hjálpa til við að upplýsa almenning og kannski líka stjórnmálamenn um hvað er raunverulega að gerast innan stofnunarinnar. Það tel ég vera vel.
Ég mótmæli hins vegar því sem hv. þm. Oddný G. Harðardóttir kom inn á áðan, að með þessu frumvarpi sé verið að auka hættuna á pólitískum skipunum. Því er ég ekki sammála. Skipanir seðlabankastjórans og sá umbúnaður sem verður um skipan seðlabankastjórans og varaseðlabankastjóra er eins og var í lögunum frá 2009. Ég tel að það gæti nokkurrar svartsýni í því að ætla að með því að búa til öfluga stofnun aukist hættan á pólitískum afskiptum. Ég held miklu fremur að þarna sé í rauninni verið að stíga stærra og öflugra skref í þá átt að gera stofnunina að sterkri sjálfstæðri stofnun sem muni tryggja að þau verkefni sem henni eru falin verði unnin á faglegan hátt. Ég mun því, eins og kemur fram í nefndarálitinu, styðja málið þegar það kemur til atkvæða, væntanlega síðar í kvöld, herra forseti.