endurskoðendur og endurskoðun.
Herra forseti. Ég tel mér rétt og skylt að kveðja mér hljóðs hér við 3. umr. um frumvarp til laga um endurskoðendur og endurskoðun. Ástæðan er sú að ég hef lagt fram breytingartillögu við 2. gr. um að í stað orðanna „ársreikningum og samstæðureikningsskilum“ í 4. tölulið komi: reikningsskilum og öðrum fjárhagsupplýsingum.
Ástæða þessa er að ábendingar bárust um að þær breytingar sem meiri hluti hv. efnahags- og viðskiptanefndar lagði til væru aðeins of þröngar þegar kæmi að skilgreiningu á hlutverki endurskoðenda og því legg ég fram þessa breytingartillögu í samráði við ráðuneytið og í rauninni Félag löggiltra endurskoðenda.
Auk þess er lögð til tæknileg orðalagsbreyting.