149. löggjafarþing — 126. fundur,  19. júní 2019.

skilgreining auðlinda.

55. mál
[20:19]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseti. Ég ætla bara rétt að koma hingað upp og þakka fyrir að þetta mál um skilgreiningu auðlinda sé komið í gegnum umhverfis- og samgöngunefnd. Eins og kom fram hjá framsögumanni nefndarinnar, hv. þm. Bergþóri Ólasyni, er sá sem hér stendur flutningsmaður að málinu sem mælt var fyrir í haust. Málið hefur verið flutt fimm sinnum áður, held ég, eða svo á undanförnum þingum liðinna ára af fyrrverandi hv. þm. Vigdísi Hauksdóttur.

Málið er ítarlega unnið og þegar ég vann að undirbúningi á flutningi á málinu fór ég í gegnum ræður, umsagnir og annað slíkt frá fyrri tíð. Tillagan fékk mjög góða umfjöllun í öll skiptin og eins í nefndinni þetta árið. Mig undrar í raun að hún skuli aldrei hafa náð fram að ganga vegna þess að þetta er nokkuð þverpólitískt í lagi. Það sést líka á undirritun á nefndarálitinu að nokkuð mikil sátt er í nefndinni um að málið fái framgöngu. Þess vegna bind ég vonir við og er ansi bjartsýnn á að þetta fái framgang í þetta sinn.

Eins og komið hefur fram oft áður hefur mest verið talað um sjávarútveginn í sambandi við auðlindagjöld. Sjávarútvegurinn er eina auðlindin sem borgar gjald af auðlindanýtingu og hefur mörgum þótt það ansi einangrað og að ekki hafi verið skoðað betur að aðrar auðlindir sem eru viðurkenndar manna á milli beri auðlindagjöld. Við samþykktum réttilega í dag gjald af fiskeldismálum þótt varlega sé stigið til jarðar í því og þótt það komi til endurskoðun eftir eitt til eitt og hálft ár er það skref í rétta átt og samþykktum við það nánast öll í þingsal.

Þetta verður náttúrlega að vera þannig þegar við tölum um þá aðila sem nýta auðlindina að þeir geti sannarlega borgað auðlindagjald. Það þarf að vinna þetta þannig að gætt sé sanngirni í því að fyrirtæki geti borið það gjald sem á þau er lagt í gegnum lög. Því er mjög brýnt að þetta mál fái góða meðferð og fái afgreiðslu. Eins og ég sagði geri ég mér miklar og góðar vonir um að það verði þannig svo að þetta verði eins faglegt og hægt er og í sátt við sem flesta. Þannig þarf þetta að vera.

Enginn hefur mótmælt því að útgerðin eigi að borga auðlindagjald en því hefur meira verið mótmælt hvernig að því er staðið þegar það er reiknað út. Sitt sýnist hverjum í því. Það hefur oft verið nefnt að kvótakerfið sé grýla en það er þá þannig, að mínu áliti, að það segi kannski eitthvað um kvótakerfið að það sé þá þess bært að geta borgað auðlindagjald. Þá hlýtur það að vera alveg ágætiskerfi.

Í þessu sambandi vil ég bara endurtaka að ég er bjartsýnn á að málið fái góða afgreiðslu og vona að þingheimur sé mér sammála í því. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra og fer glaður í sinni úr pontunni í þetta sinn.