mannanöfn.
Herra forseti. Nefndarálit meiri hluta allsherjarnefndar liggur fyrir á þingskjali og er með hefðbundnum hætti. Þar er rakið hvernig vinnu nefndarinnar var háttað, hvaða umsagnir bárust og hverjir komu fyrir nefndina. Ég ætla ekki að rekja það nánar. Þess er hins vegar að geta að svo óvenjulega háttar til í þessu máli að meiri hluti nefndarinnar leggst gegn því að þetta frumvarp verði að lögum. En í ljósi þess að um það samdist í tengslum við þinglok að málið yrði afgreitt út úr nefnd og fengi meðferð í þinginu lagðist meiri hluti nefndarinnar ekki gegn því að málið væri tekið út.
Ef ég vitna, með leyfi forseta, í nefndarálitið, kemur þar fram sem hér segir:
„Við meðferð málsins fyrir nefndinni var almennt samhljómur á meðal gesta um að tímabært væri að endurskoða lög um mannanöfn, nr. 45/1996, og að þörf væri á að gera tilteknar breytingar á lögunum, þar á meðal er varða hlutverk mannanafnanefndar, ákvæði um nafnbreytingar og um karlmanns- og kvenmannsnöfn, misræmi í heimild til að nota erlend nöfn á afkomendur eftir því hvort um eiginnafn eða millinafn er að ræða og fleira. Í þessu samhengi bendir meiri hlutinn á að innanríkisráðuneytið hóf að skoða árið 2015 hvort þörf væri á að endurskoða lög um mannanöfn, nr. 45/1996, og kallaði eftir sjónarmiðum almennings um hugsanlega endurskoðun laganna. Ráðuneytið kynnti drög að frumvarpi árið 2016 og var gefinn kostur á að senda umsögn um málið.“
En eins og fram kemur fram í nefndarálitinu hefur af hálfu ráðuneytisins ekki verið tekin afstaða til framhalds málsins þó að sú vinna liggi fyrir sem unnin var á fyrri árum.
Síðan segir í nefndarálitinu:
„Aftur á móti komu fram sjónarmið um að frumvarp þetta leiddi til nýrra og jafnvel ófyrirsjáanlegra álitaefna. Þá skorti í einhverjum tilvikum nánari útfærslu á fyrirkomulagi og/eða skýringar í greinargerð um ástæður þess að ekki væri kveðið á um t.d. ráðgjöf um nafngift, rithátt, röð nafna, millinöfn, mannanafnaskrá eða amaákvæði. Auk þess var nefndinni bent á mikilvægi þess að taka tillit til íslenskrar tungu, íslensks málkerfis og íslenskrar nafnahefðar.
Með hliðsjón af framangreindu telur meiri hlutinn æskilegt að löggjöf á þessu sviði verði skoðuð nánar. Að því sögðu er það mat meiri hlutans að nálgast þurfi breytingar á fyrirkomulagi mannanafna og laga um mannanöfn með öðrum hætti, þar sem ekki er skilið á milli mannanafna og íslenskrar tungu að öðru leyti. Að auki er ekki hægt að fullyrða um afleiðingar eða áhrif frumvarpsins yrði það samþykkt. Meiri hlutinn telur því ekki unnt að samþykkja frumvarpið.“
Undir þetta nefndarálit rita, auk þess sem hér stendur, hv. þm. Páll Magnússon formaður, sem var framsögumaður við vinnslu nefndarálitsins, Andrés Ingi Jónsson, Anna Kolbrún Árnadóttir, Steinunn Þóra Árnadóttir og Þórarinn Ingi Pétursson.