149. löggjafarþing — 126. fundur,  20. júní 2019.

fiskeldi.

647. mál
[00:30]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Sú breytingartillaga sem hv. þm. Sigurður Páll Jónsson og ég flytjum í þessu máli snýst um b-lið 24. gr. og það er viðbót sem orðist svo:

„… um er að ræða breytingu eða viðbætur við þegar útgefið rekstrarleyfi …“

Þetta snýst um að þeir sem þegar hafa fengið úthlutað rekstrarleyfi, eru að sinna eldi á grundvelli þess að stækkun þess leyfis falli undir eldra kerfið — það getur ekki verið markmið laganna að stækkun leyfis fari á uppboðsmarkað og að ótengdur aðili komi þar inn. Það getur ekki hafa verið markmiðið þannig að ég hvet þingheim allan til að styðja við þessa breytingartillögu um að stækkun á fyrirliggjandi leyfi þar sem þegar hefur verið gefið út rekstrarleyfi falli undir eldri lögin.