fiskeldi.
Forseti. Samþykkt þessarar breytingartillögu hefði það í för með sér að um aldur og ævi færi um hverja einustu umsókn um stækkun á hverju einasta leyfi sem er á burðarþolsmetnu svæði í dag eftir gamla kerfinu. Það hefði verið ágætt að ræða þessa breytingartillögu og hugmynd að henni við hv. flutningsmann og framsögumann hennar, Bergþór Ólason. Hann situr hins vegar ekki í atvinnuveganefnd og hefur kannski ekki komið mikið að vinnunni. Ég kannast þó við textann. Þetta er ekki ósvipað texta sem allir hv. þingmenn atvinnuveganefndar fengu sendan í pósti í morgun frá framkvæmdastjóra eins eldisfyrirtækisins þannig að það er ágætt að þetta komist beina leið í atkvæðagreiðslu núna.
Ég horfi á stóru myndina, ég horfi á þegar við setjum lög að þau séu algild. Hér hefur ekki verið svarað einni spurningu í umræðunni í dag um hvaða áhrif þessi breytingartillaga myndi hafa.
Ég segi því nei.