149. löggjafarþing — 126. fundur, 20. júní 2019.
mannanöfn.
9. mál
Herra forseti. Hér er um að ræða ágætt mál. Mannanafnanefnd er barn síns tíma, afurð haftaþjóðfélags og skömmtunarþjóðfélags. Við í Samfylkingunni styðjum þetta mál og ég ætla ekki að orðlengja það frekar. Við styðjum þetta mál vegna þess að við aðhyllumst „nafnrænt sjálfræði“.