mannanöfn.
Herra forseti. Í landsfundarályktun Sjálfstæðisflokksins kemur skýrt fram að það eigi að leggja niður mannanafnanefnd í núverandi mynd og endurskoða lög um mannanöfn til að gefa foreldrum meira frelsi til að gefa börnum sínum nafn en jafnframt standa vörð um íslenska mannanafnahefð.
Ég vil líka, hæstv. forseti, vitna í umsögn Ármanns Jakobssonar, prófessors í íslenskum bókmenntum, sem segir að sá galli sé á þessu frumvarpi, sem þó hefur tekið jákvæðum breytingum með breytingartillögum minni hlutans, að frumvarpið er grundvallað á rangri forsendu, þeirri að hinn frjálslyndi andi komi best fram í því að láta íslensku, þjóðtungu Íslendinga, lönd og leið og minnast þannig hvergi á tungumálið í lögum sem þó snúast um tungumálið. (Forseti hringir.)
Herra forseti. Við þurfum að gera breytingar á mannanafnalögum en við stöndum ekki með þeim hætti að því verki eins og hér er lagt til.