mannanöfn.
Herra forseti. Ég get ekki stutt þessa tillögu um breytingu á lögum um mannanöfn. Mér finnst mikilvægt að taka fram að meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar hefur svo sannarlega kynnt sér þær breytingartillögur sem liggja fyrir um málið. Margar þeirra eru til bóta miðað við hvernig málið var lagt fram í upphafi en þrátt fyrir þær tel ég ekki að málið haldi.
Ég er sammála því að það þurfi að endurskoða lög um mannanöfn en ég tel þetta ekki vera leiðina sem eigi að fara og mun því ekki greiða þessu atkvæði mitt heldur greiða á móti.