149. löggjafarþing — 126. fundur,  20. júní 2019.

mannanöfn.

9. mál
[01:14]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þetta mál var eitt af fyrstu málunum sem hv. allsherjar- og menntamálanefnd tók til skoðunar á þessu þingi. Það er búið að halda 19 fundi í nefndinni um málið. Hún hefur fengið fjölmarga gesti og fjölmargar umsagnir og það er búið að vinna ákaflega vel í málinu.

Ef mælistikan er sú að ekki megi bæta mál í meðförum þingnefnda hjálpi guð ríkisstjórninni. [Hlátur í þingsal.] Mál þetta snýst um frelsi einstaklingsins til að ráða nafni sínu.

Í gær samþykkti þessi frjálslyndi þingheimur að fólk mætti ráða kyni sínu. Menn samþykktu þar að fella niður ákvæði mannanafnalaga um að skíra eða nefna drengi drengjanöfnum og stúlkur stúlkunöfnum. Það var ekki neitt vandamál fyrir íslenska málhefð. Nei, það var ekkert vandamál en að fullorðið fólk (Forseti hringir.) geti ráðið nafni sínu er stórkostlegt vandamál.

Hvar er frjálslyndið? Hvar er frelsi einstaklingsins? Hvar eru mannréttindin? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)