mannanöfn.
Virðulegi forseti. Mig langar bara til þess að hafa ákveðna þingskapatækni á hreinu fyrir hv. þingmenn. Við göngum nú til atkvæðagreiðslu í 2. umr. sem þýðir að hér tökumst við á við breytingartillögur minni hlutans, sem er viðurkennt að séu góðar, í það minnsta margar hverjar. Verði 1. gr. frumvarpsins felld verður það úrskurðað þannig að málið í heild sinni sé fellt án þess að við fáum tækifæri til að greiða atkvæði um breytingartillögu minni hlutans.
Það verður þá frumvarp sem við höfum fellt í formi sem enginn hér hefur lagt til að atkvæði verði greidd um, heldur vill minni hlutinn breyta því með þeim hætti sem kemur fram í breytingartillögum minni hlutans.
Þess vegna vil ég hvetja hv. þingmenn sem eru á móti málinu til að sitja hjá frekar en að greiða atkvæði gegn tilteknum greinum málsins í 2. umr. Vilji þeir fella málið bið ég þá um að gera það í 3. umr. þannig að við getum greitt atkvæði um frumvarpið í þeirri mynd sem það er lagt fram með tilliti til breytingartillagna.