mannanöfn.
Virðulegi forseti. Ég vek aftur athygli á því að hér er um að ræða umbætur á málinu sem enginn er á móti svo ég viti til. Það er ekki ástæða til að greiða atkvæði gegn þessari breytingu. Verði 1. gr. felld, svo breytt eður ei, fellur málið brott án þess að við greiðum atkvæði um breytingartillögurnar sjálfar.
Ég ætla að nota orð sem stundum er notað á hinu háa Alþingi, orðið „bragur“. Það er góður bragur á sumu en slæmur bragur á öðru. Mér finnst mjög slæmur bragur á því að þingið felli frumvarp ásamt öllum breytingartillögum án þess að taka afstöðu til breytingartillagnanna í 2. umr. Það fer miklu betur á því að andstæðingar frumvarpsins sitji hjá í 2. umr. þar sem þeir eru á móti — en auðvitað væri best að þeir myndu samþykkja í það minnsta breytingartillögurnar sem eru til bóta og koma til móts við þau sjónarmið sem eru áréttuð í nefndaráliti meiri hlutans.
Þetta þarf ekki að fara svona. Það er hægt að fella þetta mál í 3. umr. án þess að gera það með þessum brag. (Forseti hringir.) Þetta er vondur bragur ef svo fer sem horfir.