149. löggjafarþing — 126. fundur,  20. júní 2019.

mannanöfn.

9. mál
[01:21]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Herra forseti. Við vitum að það eru mjög skiptar skoðanir innan stjórnarflokkanna um kvenfrelsið sjálft og upplifðum það mjög skýrt á dögunum. Fyrirsláttur vinstri manna varðandi þessar breytingar er líka mjög fyrirsjáanlegur og kunnuglegur. Núna reynir virkilega á einstaklingsfrelsið í sinni tæru mynd, ekki að því sé eingöngu flaggað korteri fyrir kosningar heldur að hvert tækifæri sé nýtt á þingi til þess að auka einstaklingsfrelsið í reynd.

Þess vegna segi ég já.