149. löggjafarþing — 126. fundur, 20. júní 2019.
mannanöfn.
9. mál
Hæstv. forseti. Um leið og ég ítreka að það sé þörf á endurskoðun á þeirri löggjöf sem hér er til umfjöllunar tel ég að málin þurfi að þroskast betur og að það þurfi að verða víðtækara samtal í samfélaginu um þessi mál.
Ég tel að það sé betra fyrir þingið að fara sér hægt í þessum efnum og segi þess vegna nei í þessari atkvæðagreiðslu.