149. löggjafarþing — 126. fundur,  20. júní 2019.

mannanöfn.

9. mál
[01:24]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Mér hefur aldrei fundist vera verri bragur á atkvæðagreiðslu á hinu háa Alþingi en núna. Í nefndaráliti meiri hlutans eru reifuð atriði sem er brugðist við í minnihlutaálitinu og meiri hlutinn lætur eins og hann hafi ekki séð þau. Ef hann sá þau lætur hann eins og hann hafi ekki séð þau.

Það er talað um að það þurfi að vinna málið svo vel. Það er búið að vinna það heilmikið. Að tala um að frumvarpið hafi ekki verið nógu gott þegar það kom hingað inn? Það liggur fyrir tillaga um að bæta það heilmikið eftir þessa miklu vinnu sem þingið mun núna ekki einu sinni taka afstöðu til vegna þess að þingið ætlar núna að greiða atkvæði gegn öllu frumvarpinu, með eða án breytinga, án þess einu sinni að ákveða hvernig fari með breytingarnar.

Hvað með þá þingmenn sem myndu vilja styðja málið með breytingunum en ekki án þeirra? (HKF: Það er búið að banna það.) Það má ekki. Það má ekki vinna málið það vel.

Svei, virðulegi forseti, þegar menn koma hingað og segja að eigi að vinna þetta mál vel. Svei, virðulegi forseti.