mannanöfn.
Forseti. Það er komin einhver skrýtin stemning í þennan sal og ekki efast ég um að nú muni einhverjir þingmönnum flissa og láta eins og orð mín séu til merkis um hvað ég sé mikill fáráðlingur.
Hér erum við einhvern veginn farin að segja hvert öðru af hverju við greiðum atkvæði eins og við gerum og krefjast þess að við gerum það öðruvísi af því að það þóknast ekki einhverjum. Það er búið að segja mér að ég sé ekki — hvað? Frelsis, frjálslyndis og nútímans megin í lífinu sem hlýtur að þýða að ég sé íhaldssamur og forpokaður torfbæjarmaður. [Hlátur í þingsal.]
Fólk sem þarf svona merkimiða hefur ekki mikið fyrir sér annað en merkimiðana. Ég hef mínar skoðanir á þessu máli. (JSV: Gott.) Þakka þér fyrir, hv. þm. Jón Steindór Valdimarsson, að sýna mér þá virðingu að fá að tala hér af einlægni, ekki í eina mínútu af því það væri ekki hægt að gera það, heldur bara í 51 sekúndu. Þetta er virðingin sem við sýnum hvert öðru. Við segjum: (Forseti hringir.) Þú ert að gera þetta af því að þú ert svo forpokaður og asnalegur.
Ég segi nei.