tilkynning forseta.
Áður en gengið er til dagskrár vill forseti geta þess að framsaga og umræður um 1. dagskrármálið, þ.e. þingfrestunartillögu, verða að loknu hádegishléi. Þá vill forseti geta þess að samkomulag er um að 2. og 3. dagskrármálin verði rædd saman og jafnframt samkomulag um aukinn ræðutíma framsögumanna í málum, samanber líka 2. mgr. 67. gr. þingskapa.
Framsögumenn nefndarálita hafa 15 mínútur umfram þann tíma sem þingsköp segja til um, þ.e. allt að 45 mínútur til framsögu, en eru að sjálfsögðu ekki skyldugir til að fullnýta þann tíma. Einnig er aukið við ræðutíma áheyrnarfulltrúa og hefur hann allt að 30 mínútur.
Jafnframt er samkomulag um að full andsvör, þ.e. tvisvar sinnum tvær mínútur, verði í boði eftir ræðu framsögumanna nefndarálita.