149. löggjafarþing — 128. fundur,  20. júní 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[12:04]
Horfa

Forseti (Bryndís Haraldsdóttir):

Forseti vill taka fram að við þessar umræður hér þar sem teknar voru saman í eina umræðu fjármálaáætlun og fjármálastefna var ræðutími rýmkaður samkvæmt samkomulagi og er þar af leiðandi 45 mínútur fyrir framsögumenn nefndarálita. Andsvör voru jafnframt rýmkuð og þannig eru andsvör tvær mínútur í hvorri umferð, þó að fleiri en tveir taki til máls í andsvörum. Það er þó skilningur forseta að það eigi ekki við þegar um er að ræða tvo þingmenn frá sama flokki. Gilda þá tvær mínútur í fyrri umræðu en ein mínúta í seinna andsvari.