fjármálaáætlun 2020--2024.
Virðulegi forseti. Það er eiginlega synd að maður hafi ekki sérstaklega lengdan tíma í andsvörum núna vegna þess að það er margt um þessa framsögu að segja. Í fyrsta lagi er auðvitað forkastanlegt að stagast í sífellu á því að fjármálaáætlun til næstu ára feli í sér mikinn niðurskurð til hinna ýmsu málefnasviða þegar því er einmitt öfugt farið. Það er hins vegar verið að draga úr útgjaldaaukningu. Í þessu nefndaráliti er ítrekað talað um að framlög til hinna ýmsu málaflokka séu að fara að lækka þegar því er öfugt farið.
Við erum stolt af þeim tillögum sem nú liggja fyrir þinginu eftir þinglega meðferð vegna þess að við erum af ábyrgð og festu að nýta það svigrúm sem staðan í hagkerfinu veitir okkur til að styðja við uppbyggingu samfélagsins. Það á við á öllum helstu sviðum, í menntamálum, samgöngumálum, heilbrigðismálum o.s.frv. Hér er því haldið fram að staðan í hagkerfinu sé áfellisdómur yfir hagstjórn ríkisstjórnarinnar og sérstaklega Sjálfstæðisflokksins. Hvar eru merkin um að allt hafi farið úrskeiðis? Eru þau í kaupmætti heimilanna? Eru þau í vaxtastiginu, í verðbólgunni, í 400 milljarða afgangi ríkisins frá 2013 eða í nýjum lánskjörum ríkissjóðs sem eru þau bestu sem hafa sést í lýðveldissögunni? Hvar eru merkin, hv. þingmaður?
Þessu var öðruvísi lýst í Vísbendingu nýlega af Gylfa Zoëga prófessor þar sem hann sagði að hagstjórnarviðbrögðin væru hreinlega eins og tekin upp úr kennslubók. Framlag Samfylkingarinnar í þessari stöðu er að lýsa miklum áhyggjum af því að hér hafi útgjöldin vaxið of mikið undanfarin ár. En hvað er þá lagt til? Jú, það á að auka þau aftur um 23 milljarða á næstu árum og fjármagna útgjöldin með 23 milljarða nýjum skatttekjum. Á áætlunartímabilinu leggur Samfylkingin til (Forseti hringir.) 115 milljarða nýja skatta.