149. löggjafarþing — 128. fundur,  20. júní 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[12:19]
Horfa

Óli Björn Kárason (S) (andsvar):

Frú forseti. Nú er það þannig — eða ég hélt að það væri þannig — að við erum sameinuð um að þegar við vinnum í nefndum að ákveðnum hugmyndum, að ákveðnum tillögum, gerðum við það í því trausti að við gætum náð einhverjum niðurstöðum og rætt þær án þess að misnota þær í pólitískum tilgangi — til að vekja ótta meðal almennings með röngum fullyrðingum um það hvað fram fari í starfi fjárlaganefndar eða yfir höfuð störfum nokkurrar annarrar nefndar. Það er ómerkileg pólitík og fram hjá því kemst hv. þingmaður ekki. Hann stundar ómerkilega pólitík, alveg eins og hann stundar ómerkilega pólitík þegar hann vitnar í það að meiri hlutinn eigi að taka mark á hagsmunaaðilum en gerir það ekki sjálfur þegar hagsmunaaðilar og samtök atvinnulífsins leggja áherslu á að það eigi ekki að hækka skatta við núverandi aðstæður heldur lækka þá. Þá kemur hv. þingmaður, hlustar ekki á hagsmunaaðila og leggur til 115 milljarða skattahækkun.