fjármálaáætlun 2020--2024.
Hæstv. forseti. Ég vil spyrja hv. þm. Ágúst Ólaf Ágústsson nokkurs. Við áttum í andsvörum í kjölfar ræðu minnar og að einhverju marki í fyrri andsvörum við ræðu hv. þingmanns hefur það komið fram sem ég ætlaði að fara yfir. Ég er hugsi yfir meðferð hugtaka. Ég held að það skipti miklu máli í umræðu um efnahagsmál að við förum rétt með hugtök og ég velti fyrir mér skilningi á hugtökunum samdráttur, hagvöxtur, sjálfbærni ríkisfjármálanna, niðurskurður og vöxtur.
Ég er nokkuð sannfærður um að hv. þingmaður hefur skilning á þessum hugtökum. Spurningin er hvort það sé meðvitað verið að beita rökvillu í málflutningi um mjög viðkvæm mál. Það er alvarlegt, hvort sem það er pólitík eða ekki.
Hv. þingmaður sagði í ræðu sinni að áhrif lífskjarasamnings væru sáralítil á ríkisfjármálaáætlun þannig að ég vil bara koma því að til upplýsinga að í nefndaráliti meiri hluta kemur fram að það eru 80 milljarðar og kannski dregur fram hve hversu vönduð forvinna var á því máli af hálfu hæstv. ríkisstjórnar og svo er bætt við þar sem kemur að barnabótum og skattaráðstöfun til viðbótar frá gildandi áætlun.