fjármálaáætlun 2020--2024.
Hæstv. forseti. Ég vil ekki fara í eitthvert stríð um meðferð hugtaka en auðvitað verðum við að hafa í huga að við erum að horfa á tvo tímapunkta. Við erum að horfa á þá tímapunkta í árum, frá ári eitt til árs tvö, á áætlun, frá gildandi áætlun yfir í næstu áætlun. Það er alltaf verið að tala um einhverjar umræður. Þegar eitt ár er búið er búið að nýta þá peninga og þá er annaðhvort vöxtur eða niðurskurður upp á tímapunkt á ári tvö. Það er ekkert um annað að ræða svo að því sé haldið til haga.
Varðandi framhaldsskólana kemur ágætlega fram í greiningarvinnu nefndarinnar í töflu á bls. 9 í nefndaráliti meiri hluta þar sem er tekinn saman vöxtur á þessu tímabili, 2018–2024. Svo er enn önnur tafla í fylgiskjali og greiningarvinnu nefndar, útgjaldavöxtur frá 2011. Þetta er allt á föstu verðlagi. Það er aukning til framhaldsskólanna, það er vöxtur um 8% frá 2018 þrátt fyrir styttinguna og þeir peningar eru látnir halda sér. Það er líka vöxtur á háskólasviði, 24% aukning til umhverfismála að raungildi. Svona gæti ég lengi talið. Það er síðan dregið fram í umfjöllun um töfluna að þar sem eru frávik, eins og hv. þingmaður var að koma að, geti þau komið til vegna stofnkostnaðar. Lögreglan er dæmi. Hv. þingmaður var að tala um einhverja mínusa en það er vegna afhendingar á síðustu þyrlunni, til að mynda, á milli ára og út fyrir gildistíma áætlunar. (Forseti hringir.) Við verðum að hafa svona þætti í huga þegar við erum að tala um þessa þætti og vanda okkur.