fjármálaáætlun 2020--2024.
Frú forseti. Hérna erum við kannski komin svolítið að kjarna málsins. Það getur vel verið að stjórnin geti útskýrt lækkun heildarframlaga til sumra málefnasviða. Við ræddum þetta aðeins í fjárlaganefnd og ég held að menn sem þar sátu hafi kannski verið sammála. Stundum var mjög grunnt á þeim svörum. Það var talað um sparnað vegna umbótaverkefnis, tilfærslu peninga o.s.frv., svona hálfgerðir frasar sem voru að útskýra stórar upphæðir. Stundum var útskýrður bara hluti af fjármununum og annað ekki. Þetta varpar kannski ljósi á það að við þurfum að vinna þetta betur og kannski lengur þegar við erum að tala um svona tölur.
Við sjáum að í fjárframlögum til framhaldsskólanna frá 2020–2024 stendur áætlunin nánast í stað. Þau lækka meira að segja á næsta ári, það eru 35 milljarðar núna en verða 34,9 2021 og 34,9 2022, svo fara þau aðeins upp aftur og verða svipuð 2024 og þau eru árið 2020. Þetta er framhaldsskólinn, þetta er bara svipað og hann hefur verið að fá.
Ég kann alveg á tölfræði. Stundum fara menn líka menn aðeins aftur í tímann. Ég hef heyrt þingmenn vera að tala um að reikna frekar frá 2017 eða 2018. Ef við förum aftar í tölunni fáum við aðra niðurstöðu. Það getur verið alveg rétt. Ef við tökum frá 2017–2024 er kannski aukning en ef við tökum 2020–2024 er ekki aukning. (Gripið fram í.) Við skulum tala bara um það sama. Það getur vel verið að við höfum báðir rétt fyrir okkur en höfum mismunandi upphafsár. En þetta er áætlunin 2020–2024 og þetta er bara „flatline“ með framhaldsskólana.
Á bls. 342 sést með háskólann, kíkið bara á þetta. Háskólinn án LÍN fær bara sömu upphæð. Það kom mér á óvart af því að það er í stjórnarsáttmála að setja svolítið duglega þar inn. Háskóli Íslands án LÍN á að fá 39 milljarða 2020, (Forseti hringir.) 40 milljarða 2024. Þetta er nánast sama talan. Þetta eru tölurnar sem ég er að reyna að fá dýpri umræðu um en einhver öskur á mig.