149. löggjafarþing — 128. fundur,  20. júní 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[12:31]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg) (andsvar):

Forseti. Ég get ekki sagt að ég sé hissa á málflutningi hv. þingmanns. Ég velti stundum fyrir mér hvort hann hafi aldrei heyrt af sögunni þar sem kallað var: Úlfur, úlfur. Frá því að þessi ríkisstjórn tók við hefur hann í hvert einasta skipti sem eitthvað hefur verið tilkynnt í fjármálum staðið í pontu með miklum tilþrifum, útmálað hversu ömurlega sé að öllu staðið og hversu miklu betra allt væri ef hann sjálfur og hans flokkur væri við völd. 19 milljarða aukning á fyrstu mánuðum þessarar ríkisstjórnar var úthrópuð hér eins og ég veit ekki hvað.

Hv. þingmaður stendur í pontu og leyfir sér að segja að orð skipti máli. Ég held að hv. þingmaður viti vel hvað orðið niðurskurður þýðir og að hann viti líka hvað fylgir því orði í umræðum um fjármál. Þegar hann leyfir sér að tala um að þetta boði niðurskurð er það ósanngjarn útúrsnúningur.

Ef ég á að fá 100.000 kr. launahækkun en fæ ekki nema 50.000 kr. launahækkun fékk ég ekki launalækkun, ég fékk minni launahækkun en ég átti von á. Þetta skilur hv. þingmaður og hann veit vel að hann er að afbaka þetta með orðum. Það kemur mér svo sem ekki á óvart en það veldur mér vonbrigðum af því að í orðum hv. þingmanns er ekki vottur af auðmýkt eða sanngirni. Hann upphefur sjálfan sig á kostnað annarra með moðreyk og útúrsnúningi. Svona ósanngirni er þvert ofan í þá lífsspeki sem ég hef tileinkað mér. Ég held að hv. þingmanni væri sæmst að útskýra betur af sanngirni og kannski bara viðurkenna að orðið niðurskurður á ekki við í þessu tilviki. Hann væri maður að meiri ef honum tækist að viðurkenna það.