149. löggjafarþing — 128. fundur,  20. júní 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[12:36]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg) (andsvar):

Forseti. Aftur kemur mér ekki á óvart hvernig hv. þingmaður svarar andsvari. Hann beitir ódýrasta mælskubragði í þessum þingsal með því að snúa upp á andsvarandann og spyrja hann spurninga. Hann stoppar aldrei eða lítur í eigin barm. Hann gagnrýnir stöðugt og segir að það sé ósanngjarnt að gagnrýna sig, horfir aldrei á innihald gagnrýninnar, að kannski sé einhver fótur fyrir henni. Svo bara frábiður hann sér að vera að tala um ósanngirni.

Tökum dæmi, forseti, af 20 punktum Samfylkingarinnar. Sjötti er menning. Hér er talað um lækkun á áætlunartímanum. Sanngjarnt hefði verið að tala um að Hús íslenskra fræða risi og svo hættum við að byggja það af því að það væri risið. Það hefði verið sanngjarnt.

Hér er talað um framlag til sveitarfélaga í gegnum jöfnunarsjóð. Sanngjarnt hefði verið að tala um að tekjur væru bundnar sem hlutfall af tekjum ríkissjóðs. Það hefði verið sanngirni.

Hér er talað um samgöngumál sem munu lækka. Sanngjarnt hefði verið að tala um að sérátaki ljúki og þar með sé því lokið.

Tölum um þróunarsamvinnu. Framlög til hennar lækka. Sanngjarnt hefði verið að tala um hana sem hlutfall af landsframleiðslu.

Ekkert af þessu er að finna í þessu plaggi hv. þingmanns en allt þetta hefði verið sanngjarnt.

Ég frábið mér það að tala svo um einhverja ósanngirni yfir því að við firrumst við orðalagi hv. þingmanns. Er hann orðinn það háheilagur að það megi ekki að gagnrýna orðalag hans?

Tökum annað dæmi af því að hér skellir hann einhverjum merkimiða á umhverfismál sem eina heild. Hvað finnst hv. þingmanni um þá hækkun sem er til loftslagsmála? Það væri gaman að heyra eitthvað jákvætt úr munni hv. þingmanns. Á milli fjármálaáætlana hækka framlög til loftslagsmála úr 6,8 milljörðum í fyrri áætlun í 8 milljarða núna og á fjárlögum 2018 miðað við 2017 verði það 9% en fara 2024 upp í 34%. Er sú sanngirni til hjá hv. þingmanni að hann geti hrósað fyrir þetta?