fjármálaáætlun 2020--2024.
Frú forseti. Já, ég hrósaði ríkisstjórninni í ræðu minni. Hv. þingmaður hefur þá ekki hlustað á það. Ég sagði að á sumum sviðum væri aukið í. Ég vil að umræðan snúist um innihald og hv. þingmaður telur sig geta útskýrt þegar tölurnar lækka á milli umræðna. Það er ekki fullkomlega rétt sem hann segir varðandi menninguna, með húsið og með samgöngumálin. Hann útskýrir lækkunina með að það sé átak og svo hætti það. (KÓP: Ég útskýrði … Hættu að snúa út úr orðum mínum.) Ég skal ekki gera það. Hér hefur verið sagt að það sé verið að bæta í á öllum sviðum. (KÓP: Ég sagði það ekki …)Nei, ég sagði það ekki. Stjórnarþingmenn hafa talað um að hér sé verið að auka útgjöld á öllum sviðum og ég er að segja að það sé ekki rétt.
Það getur vel verið að hv. þingmaður og stjórn hans geti útskýrt eitthvað af þessum niðurskurði milli 2020 og 2024. (KÓP: … allt þetta …) Nei, það er það ekki. Ég er búinn að þaullesa það, hv. (Forseti hringir.) þingmaður, og þetta … (Gripið fram í.)
(Forseti (BHar): Forseti minnir á að ræðumaðurinn sem stendur í stólnum hefur orðið. Hyggist hv. þingmenn taka spjall saman gera þeir það öðruvísi en svona. Hv. þingmaður hefur orðið og klárar núna svar við andsvari.)
Frú forseti. Ég vil einmitt að þetta snúist um innihaldið. Ég vil að það snúist um pólitík. Eru breytingartillögurnar góðar eða slæmar? Mér finnst þær slæmar. Augljóslega finnst ríkisstjórninni þær góðar. Um það snýst þessi pólitík og um það á þessi umræða að snúast.
Ég hefði ekki dregið saman fyrirhuguð framlög til öryrkja um 4,5 milljarða. Það hefði ég ekki gert. Að þessu leyti greinir okkur á, frú forseti.
Varðandi loftslagsmálin fagna ég sérhverri krónu sem er sett í þann málaflokk. Ég fagna því svo innilega og tók sérstaklega fram að við viljum tvöfalda þá fjármuni, hv. þingmaður. Það skýtur skökku við þegar umhverfismálin fá í breytingartillögunum rúmlega 1 milljarði minna en til stóð milli umræðna. Það skýtur skökku við. Ég er jákvæður gagnvart aðgerðum í loftslagsmálum og ég vil gera betur. Ég held að hv. þingmaður vilji það sömuleiðis. Við getum svo miklu meira verið samferða í þessu litla samfélagi sem við búum í en ég ítreka að breytingartillögurnar snúast um pólitík (Forseti hringir.) og þá málefnalegu gagnrýni okkar að hér sé ekki rétt skipt.