149. löggjafarþing — 129. fundur,  20. júní 2019.

framkvæmd embætta sýslumanna á lögum um aðför og lögum um nauðungarsölu.

995. mál
[13:07]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Ég vil í tilefni af þessari skýrslubeiðni vekja þingheim aðeins til umhugsunar um þróun varðandi skýrslubeiðnir í þinginu. Skýrslubeiðnum, sumum mjög umfangsmiklum, hefur fjölgað mjög mikið á undanförnum árum. Lausleg athugun sýndi fram á að árið 2013 hefði ein skýrslubeiðni verið samþykkt á Alþingi, árið eftir þrjár. Í fyrra voru þær 15, á þessu þingi 16. Margar þessar skýrslubeiðnir eiga vissulega rétt á sér en sá galli er á málsmeðferð varðandi skýrslubeiðnir að skýrslubeiðendur leggja málið fram, þingið stendur frammi fyrir því að segja já eða nei, en engin málsmeðferð á sér stað, engin athugun eða umfjöllun í nefndum og ekki einu sinni umræða í þingsal.

Ég vildi þess vegna almennt vekja máls á þessu.

Varðandi þessa skýrslubeiðni sérstaklega verð ég að segja að þarna er um að ræða bæði ósk um skýrslu um almenna framkvæmd og verklagsreglur hjá sýslumannsembættum en einnig sértækari spurningar. Ég hef ákveðnar áhyggjur af því að þarna sé í raun og veru verið að biðja um (Forseti hringir.) margra binda ritverk um almenna framkvæmd reglna um fullnusturéttarfar í landinu. Ég velti fyrir mér hvort mál af þessu tagi hefði ekki þurft nánari skoðun á vegum þingsins áður en málið væri borið undir atkvæði.