fjármálaáætlun 2020--2024.
Virðulegur forseti. Ég hef engan áhuga á að gefa þessari ríkisstjórn pening fyrr en hún útskýrir hvað hún ætlar að gera við peninginn. Þessi fjármálaáætlun lítur einfaldlega þannig út að það vantar forgangsröðunarlista, það vantar kostnaðarábatagreiningu, það er ekkert gagnsæi í því hvað í rauninni stefna stjórnvalda þýðir hvað varðar þær fjárheimildir sem við erum að samþykkja í þessum römmum.
Þess vegna er ég flutningsmaður frávísunartillögu. Ríkisstjórnin á einfaldlega að gera betur. Þess vegna greiði ég ekki atkvæði með þeim breytingartillögum sem eru hérna um að breyta útgjaldasvigrúmi málefnasviðanna hingað og þangað og þess vegna greiði ég atkvæði gegn fjármálaáætluninni, ef henni verður ekki vísað frá.