149. löggjafarþing — 129. fundur,  20. júní 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[19:43]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það er ekki hægt að láta hjá líða að nefna hversu óvenjulegar aðstæður hafa verið við afgreiðslu þessa máls í þinginu á þessu vori. Þær koma til vegna þess að mjög snörp skil urðu í hagkerfinu hjá okkur við gjaldþrot WOW og aðrar slæmar fréttir, af aflabrögðum, komu á vormánuðum. Þetta leiddi til þess að tiltölulega nýlegar hagspár voru teknar til gagngerrar endurskoðunar og við horfum skyndilega fram á að vera komin í vægan tímabundinn samdrátt á yfirstandandi ári.

Þetta setur þingið í þrönga stöðu vegna þess að tími til að fara yfir öll þau fjölmörgu atriði var knappur og í mínu ráðuneyti tók langan tíma að reikna upp áhrifin, bæði á tekju- og gjaldahlið. Þess vegna þykir mér alveg sérstök ástæða til að þakka öllum þeim sem hafa lagt hönd á plóg við að ná utan um þessa heildarmynd. Það finnst mér hafa tekist vel og þótt hér hafi verið tekist á um það hvernig við ættum að fara í gegnum fjármálaáætlun með þessar breyttu horfur (Forseti hringir.) fyrir framan okkur tel ég að við séum komin með góða niðurstöðu.