fjármálaáætlun 2020--2024.
Herra forseti. Þrátt fyrir ríkisútgjöld upp á tæpa 5.000 milljarða eru ákveðnir hópar látnir sitja eftir — og það sem meira er, þetta eru hóparnir sem eru látnir taka á sig höggið af yfirstandandi samdrætti. Þessi ríkisstjórn vill ekki treysta tekjustofna ríkisins með sanngjörnum hætti og skulu þessir hópar taka á sig fyrirhugaða kólnun hagkerfisins.
Samfylkingin vekur athygli á því að framlögð fjármálastefna frá því í mars sl. var slæm en hún versnar til muna með breytingartillögum meiri hlutans hér á þingi. Efnahagslegur stöðugleiki er mikilvægur en það er félagslegur stöðugleiki einnig. Þetta tvennt verður að fara saman og það gerir það ekki hér í dag.
Samfylkingin vill fjárfesta í framtíðinni og verja velferðina og miða allar breytingartillögur Samfylkingarinnar hér í kvöld í þá áttina.