fjármálaáætlun 2020--2024.
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (um atkvæðagreiðslu):
Virðulegur forseti. Í ljósi allnokkurra — mikilla en vonandi tímabundinna — breytinga á hagspám þurfti að bregðast við og vegna þess að við erum í góðri stöðu, vegna þess að við erum búin að búa okkur undir þetta, gat ríkisstjórnin og meiri hlutinn á þinginu brugðist við með því að ganga á afkomu, með því að fara í endurmat útgjalda, auka stafræna og rafræna stjórnsýsluþjónustu, með því að fara í frekari tekjuöflun og með því að hægja á útgjaldavexti og hliðra verkefnum.
Allt þetta hefur verið nefnt af þeim sem hafa gagnrýnt fjármálastefnuna hér í dag og fjármálaáætlunina. En aftur á móti hafa menn gjarnan tekið bara annan liðinn og ætlað að fara í þá áttina. Eins og gagnrýnin hefur verið um fjármálaáætlunina á síðustu árum vill hluti af stjórnarandstöðunni bara fara í útgjöld og vera síðan með einhverjar plattekjur en aðrir segja að það þurfi að fara í stórkostlegar skattalækkanir og alls konar hluti án þess að segja hvar eigi að bregðast við því. (Forseti hringir.) Ríkisstjórnin er að bregðast við þessu öllu saman og ég þakka fjárlaganefnd og sérstaklega formanni hennar, Willum Þór Þórssyni, fyrir frábært starf á stuttum tíma við að koma þessu hingað inn. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)