149. löggjafarþing — 129. fundur,  20. júní 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[19:47]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Útgjöld ríkisins hafa að undanförnu aukist ár frá ári samfara miklum uppgangi og vaxandi skatttekjum. Stjórnvöld virðast hafa treyst því að tekjur myndu áfram vaxa. Þrátt fyrir uppgang og auknar skatttekjur var ríkissjóður rekinn með lágmarksafgangi. Nýta átti góðærið til að búa í haginn fyrir niðursveifluna. Enn einn nýr skattur er lagður á fólk og fyrirtæki upp á rúma 11 milljarða kr. undir formerkjum umhverfisverndar og loftslagsmála. Ríkisstjórnin slær nú öll met í skattlagningu sem óljóst er að skili árangri í loftslagsmálum.

Ríkisbáknið heldur áfram að þenjast út á vakt Sjálfstæðisflokksins. Forgangsröðun útgjalda er röng, dregið er úr áður boðuðum framlögum til þeirra sem minna mega sín í samfélaginu, eins og öryrkja. Aukið skatteftirlit er jákvætt en minna má á að ríkisstjórnin felldi tillögu þess efnis frá Miðflokknum í fjárlögum.

Útfærsla breytingartillagna meiri hlutans þeirra er óljós og alfarið fengin framkvæmdarvaldinu en það hefur ekki lagt fram neinar tillögur hjá fjárlaganefnd um það hvernig það ætlar að leysa þau verkefni farsællega sem þeim eru falin (Forseti hringir.) samkvæmt nefndarálitinu.