149. löggjafarþing — 129. fundur,  20. júní 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[19:48]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Sú fjármálaáætlun sem við afgreiðum nú er annars vegar áframhald á þeirri uppbyggingu sem hefur staðið yfir í tíð þessarar ríkisstjórnar þar sem við höfum séð útgjöld aukast til mikilvægra málaflokka svo um munar. Við sjáum á þessu áætlunartímabili frá árinu 2017 fjórðungsaukningu á útgjöldum til mikilvægra málaflokka á borð við heilbrigðismál, menntamál, samgöngumál og velferðarmál. En um leið er brugðist við samdrætti í hagkerfinu af skynsemi þar sem í fyrsta lagi er gengið á afgang ríkissjóðs. Sem betur fer var ríkissjóður í stakk búinn til að takast á við þennan samdrátt, m.a. vegna skynsamlegrar hagstjórnar. Í öðru lagi með því að auka tekjur með tilkomu umhverfisskatta og -gjalda og í þriðja lagi með því að draga úr þeim útgjaldavexti sem áður hafði verið boðaður.

Það breytir því ekki að við höldum áfram að byggja upp þá innviði sem nauðsynlegt er og ég mun því styðja þessa fjármálaáætlun og tel hana góðan vegvísi inn í næstu ár. Svo vil ég taka undir kærleiksríkar þakkir til fjárlaganefndar, ekki síst formanns hennar, hv. þm. Willums Þórs Þórssonar. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)