fjármálaáætlun 2020--2024.
Virðulegi forseti. Þegar horft er fram hjá öllum umræðum um formið þar sem menn hafa helst harmað það að við skulum þurfa að taka upp fjármálastefnuna vegna þess að forsendur hafa brostið og litið til þess efnislega ágreinings sem hefur verið hér í þinginu snýst hann einkum um það hvort eigi að halda áfram að auka útgjöldin. Það er einkennilegt að hlusta á þá sem einkum hafa talað fyrir því að útgjöld hafi verið aukin um of á undanförnum árum tala fyrir því að auka þau enn frekar við þessar aðstæður. Eða hvort við þurfum að draga aðeins úr útgjaldavextinum, tryggja að ríkissjóður fari ekki í halla og standa við gefin loforð um skattalækkanir. Í því efni hafa komið fram hugmyndir um skattahækkanir. 23 milljarða skattahækkun er boðuð af Samfylkingunni, 115 milljarðar á áætlunartímabilinu.
Við ætlum á þessu áætlunartímabili að lækka tekjuskatta á einstaklinga, láta tryggingagjaldið lækka og láta bankaskattinn lækka, eins og boðað hefur verið. Þetta er rétti tíminn og réttu aðstæðurnar (Forseti hringir.) til að hleypa súrefni inn í hagkerfið og þessar lykilaðgerðir eru grunnur að þeirri sátt sem tekist hefur á vinnumarkaði. Þetta er því góð áætlun sem styður við stöðugleika.