149. löggjafarþing — 129. fundur,  20. júní 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[19:51]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Það er ekki léttvægt að breyta fjármálastefnu sem maður hefur sjálfur sett sér til fjögurra ára vegna þess að maður gat ekki horft lengra en hænufet fram fyrir fæturna á sér, þrátt fyrir aðvaranir. Þegar kemur að því að ákveða niðurskurð skiptir hins vegar höfuðmáli hvar skorið er niður og að bera ekki niður þar sem allra veikasta fólkið stendur.

Samfylkingin ber stolt fram tillögu um 105 milljarða skattahækkun á næstu fimm árum, enda er það ekki lág- og millitekjufólk sem mun bera hana heldur sturtríkt auðfólk sem borgar sér fjármagnstekjur og vexti fyrir tugi og hundruð milljóna á ári, útgerð sem borgar u.þ.b. það sama og tóbaksgjaldið, og svona gætum við haldið áfram.

Við viljum verja lág- og millitekjufólk og það hélt ég að Vinstri græn hefðu hingað til viljað líka. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)