fjármálaáætlun 2020--2024.
Herra forseti. Það er hægt að gagnrýna ríkisstjórnina fyrir margt en einna alvarlegastur er skortur á framtíðarsýn. Við horfumst nú í augu við stórkostlegar breytingar á samfélaginu sem munu gjörbreyta okkar veruleika. Þær munu ekki una hreppamörkum eða landamærum og við verðum að takast á við þær, ef okkur á að farnast vel. Meðal þess sem við þurfum að gera er að gjörbylta menntakerfinu, efla frumkvæði, hugvit og nýsköpun. Þá verðum við að leggja enn meiri áherslu á aðgerðir til að sporna við hamfarahlýnun sem er stærsta ógn okkar og mun verða um ófyrirséðan tíma.
Samfylkingin leggur því fram nokkrar tillögur sem miða að því að fjárfesta í framtíðinni og við vonum svo sannarlega að þingheimur hafi framsýni og samþykki þær.