149. löggjafarþing — 129. fundur,  20. júní 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[19:56]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Tillögurnar eru um heilbrigðisþjónustu, málefni aldraða og öryrkja, fjölskyldumál og húsnæðisstuðning. Samfylkingin leggur þær fram svo verja megi velferðina að einhverju marki. Þeir sem þurfa helst á stuðningi og þjónustu ríkisins að halda eiga því miður að taka á sig niðursveifluna að stórum hluta samkvæmt áætlun ríkisstjórnarinnar. Það teljum við í Samfylkingunni algjörlega óásættanlegt og hvetjum þingheim til að hafna slíkum áherslum og samþykkja í staðinn tillögur okkar jafnaðarmanna.