149. löggjafarþing — 129. fundur,  20. júní 2019.

fjármálaáætlun 2020--2024.

750. mál
[20:01]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (Vg):

Virðulegi forseti. Í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar er lagt til að 300 millj. kr. séu millifærðar af málefnasviði 35: Alþjóðleg þróunarsamvinna yfir á málefnasvið 4: Utanríkismál. Ástæðan er sögð vera uppsöfnuð viðhaldsþörf og nauðsyn til að tryggja óbreytta starfsemi varnarmannvirkja á Keflavíkurflugvelli vegna Atlantshafsbandalagsins. Ég vil meina að óbreytt starfsemi sé of mikil starfsemi, eins og kemur fram í svari utanríkisráðherra við fyrirspurn minni sem birtist hér í vetur þar sem kom fram að viðvera herliðs á Keflavíkurflugvelli hefur verið varanleg síðustu þrjú ár. Miklu frekar ætti að draga úr viðveru en að auka við fjárframlög til þessarar aðstöðu.

Hins vegar liggur ekki fyrir breytingartillaga um þennan lið sérstaklega. Því sé ég mig nauðbeygðan, virðulegur forseti, til að greiða ekki atkvæði með þeirri töflu sem hér um ræðir og þeirri sem við greiðum atkvæði um í næstu atkvæðagreiðslu.