149. löggjafarþing — 130. fundur,  28. ág. 2019.

framhaldsfundir Alþingis.

[10:33]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Forseti Íslands gjörir kunnugt:

„Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda miðvikudaginn 28. ágúst árið 2019 kl. 10.30.

Gjört á Bessastöðum, 16. ágúst 2019.

Guðni Th. Jóhannesson.

________________

Katrín Jakobsdóttir.

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“

 

Ég býð hæstv. forseta og hv. alþingismenn velkomna til áframhaldandi þingfundastafa á 149. löggjafarþingi í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag um skipulag umræðna frá því í júní.