149. löggjafarþing — 130. fundur, 28. ág. 2019.
framhaldsfundir Alþingis.
Ég þakka hæstv. ráðherra hennar ágætu orð og býð um leið hv. alþingismenn velkomna til starfa sem og starfsfólk Alþingis. Það er gott samkomulag um fyrirkomulag þinghaldsins þessa daga sem áformaðir eru til þinghalds núna. Það er von mín að þingstörfin gangi vel til að ljúka þeim málum sem verða á dagskrá.