149. löggjafarþing — 130. fundur,  28. ág. 2019.

tilkynning.

[10:35]
Horfa

Forseti (Guðjón S. Brjánsson):

Á þingfundi 22. janúar sl. voru kosnir tímabundið 7. og 8. varaforseti til að fara með tvö tengd siðareglumál sem höfðu þá borist forsætisnefnd en forseti og allir varaforsetar höfðu sagt sig frá. Afgreiðslu þeirra mála lauk formlega þann 1. ágúst sl. með birtingu á áliti forsætisnefndar. Þar með er kosning 7. varaforseta, Steinunnar Þóru Árnadóttur, og 8. varaforseta, Haralds Benediktssonar, niður fallin.