149. löggjafarþing — 131. fundur,  29. ág. 2019.

kosning 5. varaforseta í stað Jóns Þórs Ólafssonar, skv. 3. mgr. 3. gr. þingskapa, sbr. 5. mgr. 82. gr. þingskapa.

[10:33]
Horfa

Forseti (Guðjón S. Brjánsson):

Eins og tilkynnt var í upphafi þingfundar í gær hefur borist bréf frá Jóni Þór Ólafssyni, 8. þm. Suðvest., um að hann segi af sér sem 5. varaforseti Alþingis. Samkvæmt því er nú á dagskrá þessa fundar kosning 5. varaforseta.

Borist hefur ein tilnefning, um 3. þm. Reykv. n., Helga Hrafn Gunnarsson. Þar sem ekki eru fleiri tilnefndir en kjósa skal lýsi ég Helga Hrafn Gunnarsson réttkjörinn sem 5. varaforseta Alþingis og óska honum velfarnaðar í starfi.