149. löggjafarþing — 132. fundur,  2. sept. 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[10:39]
Horfa

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég greiði atkvæði með málinu. Í fjölda ára hefur málið verið í vinnu í þinginu og til skoðunar og meðferðar, bæði fengið mikla yfirlegu og undanþágur í ferlinu. Vinnan í nefndinni var einnig ítarleg og yfirgripsmikil, fjöldi sérfræðinga varpaði ljósi á málið og svaraði spurningum sem hafa vaknað.

Ég samþykki þriðja orkupakkann af því að það sem snýr að okkur, neytendavernd með auknu eftirliti með einokunarstöðu á orkumarkaði, er jákvætt og samrýmist afar vel stefnu Sjálfstæðisflokksins. Umræðan sem hefur farið fram síðustu misseri er þó með engu búin, flestallt á erindi í umræðu um orkustefnu fyrir Ísland sem nú er unnið að, en þriðji orkupakkinn breytir engu þar um, hvort sem um er að ræða lagningu sæstrengs, fullveldi yfir auðlindum okkar eða jöfnun dreifikostnaðar eða annað. Við skulum ræða orkumál, standa vörð um auðlindir okkar og hvernig við gerum það til að auka lífsgæði okkar enn frekar og þriðji orkupakkinn breytir engu þar um.