ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Í upphafi skal endinn skoða. Við erum búin að innleiða tvo orkupakka. Þessi er númer þrjú, þriðji af fimm. Það er alveg ljóst að meginmarkmiðið með innleiðingu þessara orkupakka er aðeins eitt og það er sameiginlegur innri markaður raforku í Evrópu. Það er skortur á grænni orku í Evrópu. Það er alveg augljóst hvert markmiðið er og mér finnst með ólíkindum að ekki skuli vera einblínt meira á hið eiginlega markmið með innleiðingu orkupakkans. Það er sameiginlegur innri raforkumarkaði í Evrópu, það er áframhaldandi keyrsla, að koma okkur undir boðvaldið í Brussel og Flokkur fólksins segir: Nei, takk, við innleiðingu þessarar stefnu.